Þú byrjar á að smella á hnappinn á forsíðunni og þá kemst þú inn í netverslunina sem er skipt í hina ýmsu flokka.

Þá getur þú smellt á myndirnar til að sjá úrvalið í hverjum flokki.

Þú getur svo skoðað hverja vöru enn frekar með því að smella á myndina af vörunni og þá birtist stærri mynd og nánari lýsing. Síðan lokar þú bara þeim glugga.

Til að versla þarft þú að byrja á að velja það magn sem þú ætlar að kaupa með því að skrifa það í reitinn fyrir neðan myndina af vörunni.

Því næst þarft þú að smella á myndinaog þá birtist lítill gluggi þar sem spurt er hvort þú viljir setja vöruna í körfu og þú smellir þá á OK.

Þar með er varan þín komin í innkaupakörfuna þína. Þú getur síðan valið eins margar vörur og þú vilt í körfuna þína með sama hætti.

Ef þú vilt síðan skoða hvað þú ert búin að versla mikið getur þú smellt á hnappinn , sem er efst til hægri á síðunni, og séð það. Þar getur þú líka hætt við einstaka pöntun með því að smella á ,,eyða" fyrir aftan hverja vöru, eða hætt við pöntunina í heild með því að smella á ,,Tæma körfu" fyrir neðan.

Til þess að ljúka við að panta þá smellir þú annaðhvort á afgreiðsluborðið eða á hnappinn ,,Panta" og þá birtast reitir sem þú þarft að fylla út í eftir því sem við á og að síðustu að smella á hnappinn ,,Staðfesta pöntun" sem er neðst á síðunni.

Pöntunin berst okkur þá á nokkrum sekúndum og við göngum frá henni fljótt og örugglega og sendum þér í pósti.

Sendingarkostnaður:

Póstkrafa kr. 460,-

1- 3 snið ef greitt er með greiðslukorti kr. 100,-

1- 3 snið ef lagt er inn á reikning kr. 100,-