Föndur.is
er draumafyrirtækið okkar og að baki því
stöndum við hjónin Ásdís,
snið-hönnuður, og Sölvi sem sér
um vefsíður okkar.
Frá
blautu barnsbeini hefur saumaskapur og handavinna af ýmiskonar
tagi átt hug minn allan. Ég útskrifaðist
árið 2000 sem kennari með myndmennt sem
aðalgrein. Núna síðustu ár
hafa fígúrur ýmist saumaðar eða
úr tré heillað mig og skemmtilegast
finnst mér að hanna hlutina sjálf.
Í framhaldi
af hönnun minni fannst mér það spennandi
kostur að koma sniðunum mínum í
neytenda-pakkningar með ítarlegum íslenskum
leiðbeiningum en mjög fátítt er
að fá slík snið hérlendis.
Við opnuðum
formlega vefsíðuna www.fondur.is
1. maí 2003. Ég var dugleg
að halda námskeið bæði heima
og að heiman. Markaðurinn var fljótur að
svara og ljóst var að sniðin mín
voru virkilega kærkomin íslensku handavinnufólki.
Árið
2004 hófst markaðssetning
sniðanna minna í Bandaríkjunum. Þá
tókum við þátt í alþjóðlegri
bútasaumsýningu ,,International
Quilt Market" sem haldin var í
Kansas City þá um vorið. Á erlendri
grundu ganga sniðin mín undir nafninu Disa
Designs, www.disadesigns.com.
Viðtökurnar
úti hafa verið mjög góðar og
árið 2007 gaf ég út tvær
bækur sem innihalda 7 verkefni hvor. ,,My
Season" og ,,My Angels" sem
hafa fengið gríðarlega góðar
viðtökur. Sniðunum mínum og bókunum
í USA er dreift frá Minnesota þar
sem skrifstofa okkar og lager er staðsettur.
Að sjálfsögðu
er það heilmikil vinna sem fer í markaðsetninguna
erlendis og höfum við nú í byrjun
árs 2008 tekið þátt í 6
alþjóðlegum bútasaumsýningum
þær eru:
-
International Quilt Market -
Kansas City vor 2005
-
International Quilt Market - Minneapolis vor 2006
-
International Quilt Market - Houston haust 2006
-
International Quilt Market - Salt Lake City vor 2007
-
International Quilt Market - Houston haust 2007
-
International Quilt Market - Portland vor 2008
______________________________________
Föndur.is
er eingöngu netverslun með sniðunum mínum
og ég sendi að sjálfsögðu út
um allt land.
Veturinn 2007-2008
er ég í samstarfi við Quiltbúðina
á Akureyri. Þar sem ég hanna snið
fyrir Dísu - Quilt Klúbbinn. Quiltbúðin
sendir svo út sniðin ásamt efni sem
þarft í verkefnið til klúbbfélaga.
Þessi snið mín fást eingöngu
í gegnum klúbbinn. Nánari upplýsingar
um klúbbinn er hjá Quiltbúðinni.
_____________________________________
Í
stuttu máli sagt hér á föndur.is
getur þú verslað snið sem hönnuð
eru af Ásdísi Erlu Guðjónsdóttur
í vönduðum pakkningum með ítarlegum
íslenskum leiðbeiningum !
Allar
upplýsingar eru að finna hér á
vefnum okkar, svo að er um að gera að vafra
um og skoða vefinn sem við höfum lagt ómælda
vinnu í og erum svo stolt af.
Ásdís
Erla