Karólína kanína


Karólína kanína (100 cm á hæð) er skemmtileg heilsársfígúra sem getur svo breyst í frábæra páskakanínu um páskana. Hægt er t.d að láta hana halda þá á körfu með eggjum eða páskagrein með fuglum, allt eftir hugmyndaflugi hvers og eins.

Verð námskeiðs er kr. 4.900. Námskeiðið er ca. 4-5 klst. Markmið námskeiðsins er að klára kanínuna en kanínubörnin, sem Karólína heldur á, klárar fólk heima ef það vill.

Efni sem mæta þarf með á námskeiðið:

50 cm af ljósbrúnu eða drapplitu efni í kanínuna (gott að nota flúnelefni).
80 cm af efni í kjól.
65 cm af efni í kápu utanyfir kjól.
Tróð inní kanínuna.

Annað sem þarf að mæta með á námskeiðið:
Saumavél og áhöld.

Sjáumst hress :-)


Ásdís Erla
föndur.is – Kirkjuvegi 17
S. 482 1894 – 693 5301