Löber - Engill

Fallegur englalöber sem hægt er að nota allt árið.

Verð námskeiðs er kr. 2.900 Á námskeiðinu er löberinn settur upp, sýnt hvernig á að sauma í myndina og hvernig á að ganga frá löbernum í lokin.

Efni sem þarf að versla í löberinn:
• 70 cm af efni í framstykki og bakstykki
• 35 cm af efni í kjól engils
• 10 cm af efni í blússu undir kjól engils
• 10 cm af efni í vængi engils
• Efnisbútur í hendur og höfuð engils
• Efnisbútar í laufblöð (tveir grænir litir)
• 10 cm af efni í stjörnu framaná kjól engils og stjörnu fyrir ofan engil
• Efnisbútur í litla stjörnu innaní stjörnu framaná kjól engils
• 35 cm af dúkavatti sem sett er inní löber
• 1 m. af flísófixi (þunnu)
• Svart garn (Árórugarn eða perlugarn) til þess að sauma meðfram mynd á löber.

Annað sem þarf að mæta með á námskeiðið:
Straujárn, tvinna, nál (nógu grófa til þess að sauma með Árórugarninu), skæri, málband og títuprjóna.

 

Sjáumst hress :-)


Ásdís Erla
föndur.is – Kirkjuvegi 17
S. 482 1894 – 693 5301