Löber - Fuglahús

Yndislega heimilislegur fuglahúsalöber sem á stendur "Heima er best" !

Verð námskeiðs er kr. 2.900 innifalið í því er sniðpakkning af löbernum til eignar. Á námskeiðinu er löberinn settur upp, sýnt hvernig á að sauma í myndina og hvernig á að ganga frá löbernum í lokin.

Efni sem þarf að versla í löberinn:
• 70 cm af efni í framstykki og bakstykki
• 35 cm af efni í fuglahús
• 15 cm ef efni í þak og hjörtu sitthvoru megin við fuglahús
• 10 cm af efni í fugla (einn eða tvo liti)
• Efnisbútar í laufblöð (tveir grænir litir)
• Efnisbútar í hjörtu á fugla
• Efnisbútar í fuglagogga
• Efnisbútur í gat á fuglahúsi
• 4 tölur á laufblöð
• 35 cm af dúkavatti sem sett er inní löber
• 1 m. af flísófixi (þunnu)
Svart garn (Árórugarn eða perlugarn) til þess að sauma meðfram mynd á löber

Annað sem þarf að mæta með á námskeiðið:
Straujárn, tvinna, nál (nógu grófa til þess að sauma með Árórugarninu), skæri, málband og títuprjóna.

Sjáumst hress :-)


Ásdís Erla
föndur.is – Kirkjuvegi 17
S. 482 1894 – 693 5301