Virkilega
þjóðlegur og flottur löber.
Stelpa og strákur í þjóðbúningum
eru sitthvoru megin á löbernum og stjörnur
á milli.
Þetta er að sjálfsögðu tilvalin
gjöf til Íslendinga sem búa erlendis!
Stærð
löbers 25 cm x 110 cm
Verð námskeiðs
er kr. 2.900. Á námskeiðinu er löberinn
settur upp, sýnt hvernig á að sauma
í myndina og hvernig á að ganga frá
löbernum í lokin.
Efni sem þarf að versla í löberinn:
50 cm af efni
í framstykki og bakstykki
20
cm af efni í kjól og skotthúfu
á stelpu og buxur og vesti á strák
5
cm af efni andlit og hendur
15
cm af efni í skyrtu á strák
15
cm af efni í blússu á stelpu
20 cm af efni
í svuntu á stelpu og húfu á
strák
Efnisbútur í klút
á strák
10 cm af efni í stjörnur
(mega vera í mismunandi litum - kaupa þá
3 x 10 cm)
25 cm af dúkavatti sem sett
er inní löberinn
50 cm af straulími (flísófixi
- þunnu)
Svart og ljóst garn (Árórugarn
eða perlugarn) til þess að sauma meðfram
mynd á löber
Annað sem þarf að mæta með
á námskeiðið:
Straujárn, tvinna, nál (nógu grófa
til þess að sauma með Árórugarninu),
skæri, málband og títuprjóna.