Löber - Jólasveinn

Hvað er jólalegra en fallegur jólasveinalöber á eldhús- eða stofuborðið í desember! Þessi verður ekki jólalegri!

Stærð löbers 35 cm x 110 cm.

Verð námskeiðs er kr. 2.900. Á námskeiðinu er löberinn settur upp, sýnt hvernig á að sauma í myndina og hvernig á að ganga frá löbernum í lokin.

Efni sem þarf að versla í löberinn:
  • 70 cm af efni í framstykki og bakstykki
  • 35 cm af efni í búk, ermar og húfu
  • 10 cm af efni andlit
  • 15 cm af efni í skegg
  • Efnisbútur í yfirvaraskegg
  • 10 cm af efni í kant á jólasveinahúfu og kant framaná ermar
  • 10 cm af efni í jólatré
  • 10 cm af efni í skó og vettlinga
  • 10 cm af efni í hæl á skó
  • Efnisbútur í stilk á jólatré
  • 35 cm af dúkavatti sem sett er inní löberinn
  • 120 cm af straulími (flísófixi - þunnu)
  • Svart garn (Árórugarn eða perlugarn) til þess að sauma meðfram mynd á löber

Annað sem þarf að mæta með á námskeiðið:
Straujárn, tvinna, nál (nógu grófa til þess að sauma með Árórugarninu), skæri, málband og títuprjóna.
Sjáumst hress :-)


Ásdís Erla
föndur.is – Kirkjuvegi 17
S. 482 1894 – 693 5301