Löber - Kanína
Krúttlegur kanínulöber sem bæði er hægt að nota allt árið og svo er hann líka mjög fallegur á páskaborðið.
Verð námskeiðs er kr. 2.900. Á námskeiðinu er löberinn settur upp, sýnt hvernig á að sauma í myndina og hvernig á að ganga frá löbernum í lokin.

Efni sem þarf að versla í löberinn:
• 70 cm af efni í framstykki og bakstykki
• 35 cm af efni í kjól kanínunnar
• 10 cm af efni í blússu undir kjól
• 25 cm af efni í andlit, fætur og hendur kanínunnar
• Efnisbútar af efni í egg framaná kjól kanínunnar (þrír litir)
• Efnisbútur í slaufu á eyru kanínunnar
• 35 cm af dúkavatti sem sett er inní löberinn
• 1 m. af flísófixi (þunnu)
• Svart garn (Árórugarn eða perlugarn) til þess að sauma meðfram mynd á löber

Annað sem þarf að mæta með á námskeiðið:
Straujárn, tvinna, nál (nógu grófa til þess að sauma með Árórugarninu), skæri, málband og títuprjóna.
Sjáumst hress :-)

Ásdís Erla
föndur.is – Kirkjuvegi 17
S. 482 1894 – 693 5301