Hönnun Ásdísar Erlu Guðjónsdóttur

Sumarlegt skilti á útidyrahurðina!

Hér er góð humynd af sumarlegu fjölskyldublómi sem tilvalið er að setja á útidyrahurðina !

  • Byrjið á að teikna upp snið af blóminu. Það gerið þið bara fríhendis því þið eruð svo klár ;-). Munið þetta er ykkar fjölskyldublóm og þess vegna er svo skemmtilegt að það sé teiknað af ykkur sjálfum (hægt er jafnvel að leyfa börnum á heimilinu að spreyta sig!)
  • Allt í allt er blómið á myndinni um 60 cm. Teiknaður er stilkur sem er ca. 50 cm á lengd með laufblöðum á. Svo er blómið teiknað og það er ca. 25 cm á hæð. Hringurinn í miðju blómsins er líka teiknaður.
  • Stykki blómsins eru s.s. þrjú, stilkurinn, blómið og hringurinn. Stykkin eru söguð út. Ágætt er að nota 12 mm krossvið. Pússað er yfir stykkin þegar búið er að saga þau út.
  • Hringurinn í miðju blómsins er festur með tveimur skrúfum sem skrúfaðar eru frá bakhlið blómsins í gegnum það og inn í hringinn. Stilkurinn er festur við blómið með tveimur skrúfum sem skrúfaðar eru frá bakhlið stilksins í gegnum hann og inn í blómið.
  • Litirnir á okkar blómi eru frá FolkArt: Blóm: Clay Bisque. Miðja á blómi: Yellow Ochre. Skilkur: Van Dyke Brown. Laufblöð: Olive Green. Skygging blóms: Van Dyke Brown.
  • Blómið er málað og þurrburstað er yfir blómið og miðju þess með brúnum lit. Þegar þú þurrburstar er litur settur í pensilinn en ,,dúppað" er svo úr honum á blað þannig að mjög lítil málning er í penslinum þegar þú burstar yfir alla kanta og örlítið yfir alltsaman.
  • Pússað er yfir kanta stilksins ásamt laufblöðunum.
  • Þá er að skrifa á skiltið. Í miðjuna er t.d. skrifað ,,Hér búa" og svo eru fjölskyldumeðlimir skrifaðir á blómið. Ef fjölskyldumeðlimir eru færri er 5 er allt í lagi að sumir angar blómsins séu auðir, eða heimilisfang skifað á einhvern staðinn.....allt eftir hugmyndaflugi ykkar:-)
  • Ef skiltið ykkar á að vera úti borgar sig að lakka yfir það með glæru lakki.
  • Bastslaufa er bundin neðst á skiltið og þá er ,,Fjölskyldublómið" tilbúið og ekkert annað að gera en skella því á hurðina. Ágætt er að skrúfa tvær litar skrúfur örlítið inn í bakhlið blómsins sitthvoru megin til þess að vefja blómavír utanum skrúfurnar. Blómavírinn er svo festur við nagla á hurðinni :-)